Erlent

Bresk stjórnvöld banna fíkniefnakstur

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Bresk stjórnvöld vinna nú að því að breyta umferðarlöggjöf þannig, að akstur vélknúinna ökutækja verði bannaður undir áhrifum fíkniefna. Um leið er ætlunin að taka upp greiningaráhöld, líkt og þau sem lögregla hér á landi notar, til að athuga megi á staðnum hvort ökumaður teljist undir áhrifum fíkniefna. Ekki er þó gert ráð fyrir að þetta verði komið í gagnið fyrr en eftir tvö til fimm ár. Stjórnvöld vísa til rannsóknar frá árinu 2001 þar sem gerð var úttekt á ástandi fólks úr tæpum 1.200 umferðarslysum. Þar reyndust 22,9 prósent ökumanna undir einhvers konar áhrifum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×