Ástralar herða netlokanir Atli Steinn Guðmundsson skrifar 9. júní 2009 07:25
Fjöldi ástralskra fyrirtækja sem lokar fyrir aðgang að ýmsum samskiptasíðum á Netinu hefur margfaldast undanfarið. Á tæpu ári hefur fjöldi þeirra fyrirtækja sem grípa til slíkra aðgerða fjórfaldast. Oftast eru það samskiptavefirnir Facebook og Twitter sem lokað er fyrir og þá með þeim rökum að nú verði fólk hreinlega bara að fara að vinna í vinnunni eins og ástandið sé í heiminum. Telstra Corporation í Ástralíu hefur sýnt fram á að starfsmaður sem ver einni klukkustund af daglegum vinnutíma sínum á síðu á borð við Facebook kostar vinnuveitanda sinn mörg þúsund dollara á ársgrundvelli þegar upp er staðið. Einkum getur þessi baggi orðið smærri fyrirtækjum þungbær en það eru einmitt þau sem einnig eiga í vök að verjast vegna kreppuástands. Nú er svo komið að um það bil 6.000 tilraunir starfsmanna til að komast inn á lokuð vefsvæði eru brotnar á bak aftur dag hvern en til samanburðar var þessi tala 2.000 á dag fyrir tíu mánuðum. Eins hafa mörg fyrirtæki sett skýrar reglur um netnotkun með eða án þess að loka aðgangi. Á hinn bóginn má ekki gleyma því að rannsókn Háskólans í Melbourne sýndi svo ekki varð um villst að fólk sem þvælist um Netið á vinnutíma er að jafnaði um níu prósent öflugri starfskraftar en þeir sem eru ekki á Netinu.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Erlent Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Innlent Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri Innlent Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Innlent Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik Innlent Fleiri fréttir Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Sjá meira
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent