Erlent

Ástralar herða netlokanir

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Fjöldi ástralskra fyrirtækja sem lokar fyrir aðgang að ýmsum samskiptasíðum á Netinu hefur margfaldast undanfarið.

Á tæpu ári hefur fjöldi þeirra fyrirtækja sem grípa til slíkra aðgerða fjórfaldast. Oftast eru það samskiptavefirnir Facebook og Twitter sem lokað er fyrir og þá með þeim rökum að nú verði fólk hreinlega bara að fara að vinna í vinnunni eins og ástandið sé í heiminum.

Telstra Corporation í Ástralíu hefur sýnt fram á að starfsmaður sem ver einni klukkustund af daglegum vinnutíma sínum á síðu á borð við Facebook kostar vinnuveitanda sinn mörg þúsund dollara á ársgrundvelli þegar upp er staðið. Einkum getur þessi baggi orðið smærri fyrirtækjum þungbær en það eru einmitt þau sem einnig eiga í vök að verjast vegna kreppuástands.

Nú er svo komið að um það bil 6.000 tilraunir starfsmanna til að komast inn á lokuð vefsvæði eru brotnar á bak aftur dag hvern en til samanburðar var þessi tala 2.000 á dag fyrir tíu mánuðum. Eins hafa mörg fyrirtæki sett skýrar reglur um netnotkun með eða án þess að loka aðgangi.

Á hinn bóginn má ekki gleyma því að rannsókn Háskólans í Melbourne sýndi svo ekki varð um villst að fólk sem þvælist um Netið á vinnutíma er að jafnaði um níu prósent öflugri starfskraftar en þeir sem eru ekki á Netinu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×