Erlent

Elsti maður í heimi látinn

Tomoji Tanabe á 113 ára afmælisdaginn sinn í september síðastliðnum.
Tomoji Tanabe á 113 ára afmælisdaginn sinn í september síðastliðnum. Mynd/AP

Elsti maður í heimi, Japaninn Tomoji Tanabe, lést í svefni í gær. Hann var 113 ára gamall.

Tanabe var fæddur 18. septem­ber árið 1895 og fékk viðurkenningu frá heimsmetabók Guinness sem elsti maður heimsins þegar hann var 111 ára. Hann átti átta börn, fimm syni og þrjár dætur, 25 barnabörn, 53 barnabarnabörn og sex barnabarnabarnabörn.

Japanar eru á meðal langlífustu þjóða heims, og í fyrra voru 36 þúsund manns í landinu meira en 100 ára að aldri.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×