Erlent

Enn eitt áfallið fyrir Brown

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Gordon Brown á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir.
Gordon Brown á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir.
Ný fylgiskönnun Sunday Telegraph er enn eitt áfallið fyrir Gordon Brown, forsætisráðherra Breta. Samkvæmt könnuninni er Verkamannaflokkur Browns þriðji stærsti flokkurinn í Bretlandi. Íhaldsflokkurinn mælist með 40% fylgi, frjálslyndir demókratar mælast með 25% fylgi og Verkamannaflokkurinn með 22% fylgi þegar svarendur eru spurðir hverja þeir myndu kjósa til þings. Þetta er í fyrsta sinn síðan 1987 sem frjálslyndir demókratar mælast stærri en Verkamannaflokkurinn í þingkosningum.

Niðurstöðurnar eru ekkert hagstæðari fyrir Brown þegar Bretar eru spurðir hverja þeir ætla að kjósa í kosningum til Evrópuþingsins. Um 17% segjast ætla að kjósa Verkamannaflokkinn, 29% ætla að kjósa Íhaldsflokkinn en 20% frjálslynda demókrata.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×