Erlent

Þrjátíu fallnir eftir sjálfsmorðsárás í Pakistan

Að minnsta kosti 30 eru fallnir og 130 særðir, þar af margir alvarlega, eftir sjálfsmorðsárás á lögreglustöð í Lahore í Austur-Pakistan fyrir stundu. Tilræðismaðurinn ók bíl, hlöðnum sprengiefni, að stöðinni og sprengdi bílinn og sjálfan sig í loft upp. Lögreglustöðin er rústir einar eftir sprenginguna en talið er að 200 manns hafi verið þar inni. Ekki er vitað hverjir stóðu að tilræðinu sem er hið þriðja í Pakistan á nokkrum vikum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×