Erlent

Litlar heimtur hryðjuverkamanna í Bretlandi

Óli Tynes skrifar
Tvíburaturnarnir loga.
Tvíburaturnarnir loga.

Yfir 1400 manns hafa verið handteknir í Bretlandi á grundvelli hryðjuverkalaga síðan ellefta september árið 2001. Aðeins þriðjungur þeirra hefur hinsvegar sætt ákæru og enn færri sakfelldir.

Ný skýrsla sem gerð hefur verið opinber nær yfir tímabilið frá árásinni til loka mars árið 2008. Samkvæmt henni var eittþúsund fjögurhundruð sjötíu og einn handtekinn.

Af þeim voru aðeins 196 sakfelldir og af þessum eitthundrað níutíu og sex voru aðeins eitthundrað og tveir sakfelldir á grundvelli hryðjuverkalaganna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×