Viðskiptanefnd telur áfram þörf á Bankasýslu Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 10. ágúst 2009 23:12 Álfheiður Ingadóttir, þingmaður Vinstri grænna og formaður viðskiptanefndar Alþingis. Mynd/GVA
Meirihluti viðskiptanefndar telur áfram þörf á að starfrækja Bankasýslu ríkisins, þrátt fyrir samkomulag sem náðst hefur við skilanefndir gömlu bankanna um að erlendir kröfuhafar eignist hugsanlega mikinn meirihluta í Íslandsbanka og Nýja Kaupþingi. Þetta kemur fram í framhaldsáliti sem nefndin skilaði í dag. Nefndin tók Bankasýsluna og eigandastefnu ríkisins til umfjöllunar á ný eftir að samkomulagið við skilanefndirnar lá fyrir, en upphaflega var gert ráð fyrir að ríkið yrði eigandi allra stóru bankanna þriggja. Í framhaldsálitinu segir hins vegar að jafnvel þótt samkomulagið gangi eftir og erlendir kröfuhafar taki Íslandsbanka og Nýja Kaupþing yfir muni ríkið áfram fara með 60 til 70 prósenta hlutdeild á fjármálamarkaði. Þessi umsvif telur nefndin svo mikil að þörf sé fyrir Bankasýslu til að fara með þá eignarhluti hins opinbera. Þá bendir meirihluti nefndarinnar einnig á að ekki muni skýrast hvort kröfuhafarnir uppfylli skilyrði FME og séu tilbúnir til að taka að sér eignarhluti í nýju bönkunum fyrr en í september. Ýmsir gestir komu á fundi viðskiptanefndar við umfjöllun um málið. Þar á meðal átti hún símafund við Mats Josefson, efnahagsráðgjafa ríkisstjórnarinnar.
Mest lesið Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Innlent Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Stakk og skar fórnarlambið á háls Innlent Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Innlent Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Erlent Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Erlent Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Innlent Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Innlent Fleiri fréttir Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Krapaspýja lokar Vestfjarðavegi Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Ekki hlutverk grunnskóla að kenna börnum sjálfsvörn Rafmagnsleysið og sjálfsvarnarkennsla Stakk og skar fórnarlambið á háls Auglýstu eftir framboðum og skelltu í lás yfir páska Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Þau skipa lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Sjá meira