Erlent

Mótmæltu byggingu bænahúss múslima

Hluti af mótmælunum í Köln fyrr í dag.
Hluti af mótmælunum í Köln fyrr í dag. Mynd/AP
Rúmlega 1600 manns komu saman í Köln í Þýskalandi fyrr í dag til að mótmæla íslamsvæðingu þýsks samfélags. Hópurinn sem stóð á bak við mótmælin er andsnúinn byggingu nýrrar mosku í borginni og fjölgun múslima í Þýskalandi. Fjölmörgum leiðtogum þjóðernissinnaðra samtaka í Evrópu var boðið að vera viðstaddir fundinn.

Til átaka kom á milli andstæðra fylkinga á mótmælafundinum þegar 100 manna hópur reyndi að stöðva fundinn með hrópum og köllum á borð við „Burt með nasistana."

Moskan verður 4500 fermetrar að stærð og allt að 2000 manns munu geta komið saman í bænahúsinu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×