Ísraelar æfir Sameinuðu þjóðunum 20. apríl 2009 12:20 Bygging Sameinuðu þjóðanna í New York. Mynd/GVA
Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna harmar hve mörg ríki heims hafi ákveðið að sniðganga ráðstefnu um kynþáttamisrétti sem hófst í Genf í Sviss í morgun. Forseti Írans verður á ráðstefnunni og óttast margir að hann muni nota ráðstefnuna sem vettvang fyrir gyðingahatur. Ísraelar eru æfir Sameinuðu þjóðunum fyrir að hafa boðið Írönum til fundarins og hafa kallað sendiherra sinn heim frá Sviss vegna þess að Hans-Rudolf Merz, forseti Sviss, bauð Mahmoud Ahmadeinajad, Íransforseta, velkominn til Sviss í gær og fundaði með honum. Fundurinn í dag sem stendur í fimm daga er í framhaldi af umræðufundi sem Sameinuðu þjóðirnar héldu í Durban í Suður-Afríku 2001. Þar kom til heiftarlegar átaka þegar átti að flokka síonisma sem kynþáttahyggjur. Bandaríkjamenn og Ísraelar gengu af ráðstefnunni. Nú voru lögð til drög að lokayfirlýsingu sem innihéldu sama orðalag. Því var mótmælt og það fellt út. Ekkert er heldur minnst á átökin fyrir botni Miðjarðarhafs. Ríki Mið-Austurlanda fengu þó í gegn að haldið var kafla þar sem hvatning til trúarofstækis var gagnrýnd. Það töldu mörg vestræn ríki hins vegar brjóta gegn tjáningarfelsi. Deilurnar um lokayfirlýsinguna hafa orðið til að Ástralar, Bandaríkjamenn, Ísraelar og Þjóðverjar senda ekki fulltrúa á ráðstefnuna en það gera Bretar, Íslendingar og Frakkar hins vegar. Við upphaf fundarins í morgun lýsti Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, yfir vonbriðgum með hversu mörg ríki hefðu ákveðið að sniðganga ráðstefnuna. Það er þó ekki bara orðalag lokayfirlýsingarinnar sem veldur deilum heldur einnig sú staðreynd að Mahmoud Ahmadinejad, Íransforseti, sækir fundinn og flytur ávarp í dag. Óttast er að hann muni nota tækifærið og greina aftur frá þeirri sannfæringu sinni að helför gyðinga hafi aldrei átt sér stað og ítreka óvild sína í garð Ísraelsríkis.
Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Fleiri fréttir Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Sjá meira