Erlent

Aung San Suu Kyi sögð veik

Aung San Suu Kyi
Þarf að fá næringu í æð.
fréttablaðið/AP
Aung San Suu Kyi Þarf að fá næringu í æð. fréttablaðið/AP

Aung San Suu Kyi, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Búrma, er sögð alvarlega veik og fá næringu í æð á heimili sínu í Rangún, þar sem hún hefur verið í stofufangelsi árum saman.

Hún er sögð eiga erfitt með að borða og hefur ekki fengið venjulegan mat í nokkra daga. Læknir hennar var kallaður í yfirheyrslu á fimmtudag, en annar læknir fékk að hitta hana á föstudag.

Aung San Suu Kyi er orðin 63 ára. Herforingjastjórn landsins hefur haldið henni í stofufangelsi í 13 af síðustu 19 árum, þar af samfleytt síðustu sex ár.- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×