Hökkuðu sig inn í farsíma stórstjarna og stjórnmálamanna Kristín María Birgisdóttir skrifar 9. júlí 2009 12:37 John Prescott. Mynd/AP
Breska blaðið The Guardian segir fjölmiðlafyrirtækið sem meðal annars gefur út æsifréttablöðin News of the World og The Sun í Bretlandi hafa hakkað sig inn í farsíma þúsundir manna, meðal þeirra séu stórstjörnur og stjórnmálamenn. Málið uppgötvaðist upp þegar lögreglan komst á snoðir um að fjölmiðlar frá News International væru að nota rannsóknarmenn til að komast ólöglega yfir símsvaraskilaboð. Fyrirtækið sem meðal annars gefur út stjörnutímaritin News of the world og The Sun, er sagt hafa boðist til að borga yfir milljón pund til að þagga málið niður samkvæmt breska blaðinu The Guardian. Bæði blöðin eru þekkt fyrir að fjalla ítarlega um líf stórstjarna og stjórnmálamanna í Bretlandi. Í blaðinu kemur einnig fram að þingmenn allra flokka hafi verið meðal skotmarka, einnig fyrrum staðgengill forsætisráðherra, John Prescott og ráðherrann Tessa Jowell. Þá var stórfyrirsætan Elle McPherson, óskarsverðlaunaleikkonan Gwyneth Paltrow og söngvarinn George Michael, einnig meðal þeirra sem urðu fyrir barðinu á farsímahökkurum. Talsmaður News International sagðist ekki geta svarað fyrir ásakanirnar að svo stöddu. Málið er litið mjög alvarlegum augum í Bretlandi og hefur John Prescott krafið lögreglu svara en málið er nú til rannsóknar.
Mest lesið Skildu skriðdrekana eftir á víglínunni Erlent „Varð að martröð“ Innlent Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Innlent „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Innlent Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Erlent Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Erlent Loftárásir skekja vopnahlé í Líbanon Erlent Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Erlent Yfirmaður WHO hughreystir Tenerife-búa Erlent Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Innlent Fleiri fréttir Skildu skriðdrekana eftir á víglínunni Loftárásir skekja vopnahlé í Líbanon Yfirmaður WHO hughreystir Tenerife-búa Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Einn í lífshættu eftir að bíl var ekið inn í þvögu Myndir af lífinu um borð í hantaveiruskipinu Farage sextánfaldar sætin á sveitarstjórnarstiginu Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Venstre fá umboð til að mynda ríkisstjórn Þriggja daga vopnahlé í Úkraínu Frederiksen á fund konungs vegna þráteflis Sátu um tóman banka í sex tíma Samföngum Maxwell refsað fyrir að tjá sig Stærsta haldlagning á rafmynt í sögu Svíþjóðar Umsátur í Þýskalandi: Bankarán varð að gíslatöku Segjast aldrei hafa séð Epstein-bréfið meinta áður Ekkert vopnahlé heldur umfangsmiklar árásir í Rússlandi Farage og félagar í Reform margfalda styrk sinn í sveitarstjórnum Englands Trump hefur í hótunum við Evrópusambandið Vopnahléið enn í gildi en alls óvíst um varanlegt samkomulag Skutu hvor á annan: Saka Bandaríkjamenn um að brjóta gegn vopnahléinu Sé ekki það sama og fyrir sex árum með Covid-19 Vopnaður maður sagður hafa ógnað Andrési fyrrverandi prins Handtaka kínverskan meintan njósnara í Noregi Þrjár „brúðir ISIS“ ákærðar fyrir hryðjuverk og þrælahald Kortleggja ferðir tuga sem fóru frá borði eftir að sá fyrsti dó Trump enn með tangarhald á Repúblikanaflokknum Risaflóðbylgja í Alaska talin nærri fimm hundruð metra há Franskur floti á leið til Persaflóa Sjá meira