Ráðherra rokkar feitt á styrktartónleikum Atli Steinn Guðmundsson skrifar 13. mars 2009 08:08 „How do we sleep while our beds are burning?“ Peter Garrett og Midnight Oil styrkja fórnarlömb skógareldanna í Ástralíu með tónleikahaldi. MYND/Reuters
Umhverfisráðherra Ástralíu átti óvænta endurkomu upp á svið þegar hann sameinaðist sinni gömlu hljómsveit á styrktartónleikum fyrir fórnarlömb skógareldanna. Það er að sjálfsögðu Peter Garrett sem hér er sagt frá, aðalsprauta gömlu brýnanna í Midnight Oil í næstum þrjá áratugi, frá 1973 til 2002. Garrett fór af einu sviðinu á annað þegar olían lagði upp laupana og var kosinn á þing árið 2004. Þremur árum síðar var hann svo skipaður umhverfisráðherra Ástralíu og gegnir því embætti nú. Ástralar hafa ekki átt sjö dagana sæla eftir að kjarr- og skógareldar geisuðu þar nú fyrir skemmstu og urðu tæplega 200 manns að bana auk þess að svipta þúsundir heimilum sínum. Um helgina fer fram heilmikil fjáröflun til styrktar þeim sem eiga um sárt að binda eftir hörmungarnar og koma liðsmenn Midnight Oil saman í þessu skyni og efna til tónleika, að sjálfsögðu með hæstvirtan umhverfisráðherra í fararbroddi. Sveitin hélt tvenna upphitunartónleika í vikunni og sýndu drengirnir þar að þeir hefðu engu gleymt enda ekki nema fjögur ár síðan þeir héldu tónleika til styrktar fórnarlömbum flóðbylgjunnar í Indlandshafi. Garrett segist ánægður með að fá að koma fram með sveitinni aftur. Eina svekkelsið sé að hann sé sá eini sem þurfi að fara í vinnuna daginn eftir.
Mest lesið „Markmið mitt var bara að ná byssunni af honum“ Erlent Sósíalistar líta til harðstjórnarríkja sem fyrirmynda Innlent Í deilum við nágrannann vegna trjáa Erlent Þrír réðust á einn og höfðu af honum farsíma Innlent Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri Innlent „Gamla góða Ísland, bara betra“ Innlent Umkringdu Taívan og æfðu lokanir hafna Erlent Trump telur friðarsamkomulag mögulegt innan nokkurra vikna Erlent Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Innlent „Þetta er ansi flókið, en þó ekki svo flókið“ Erlent Fleiri fréttir Umkringdu Taívan og æfðu lokanir hafna „Markmið mitt var bara að ná byssunni af honum“ Minnst einn látinn eftir að tvær þyrlur rákust saman í loftinu Trump telur friðarsamkomulag mögulegt innan nokkurra vikna „Þetta er ansi flókið, en þó ekki svo flókið“ Átti gott samtal við Pútín Skildu farþega eftir í fyrri ferð og strönduðu í annarri Í deilum við nágrannann vegna trjáa Mesti snjór í New York í fjögur ár Þrír létust í óveðrinu Ræðir uppfærða friðaráætlun við Trump í dag Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Fjórir göngumenn látnir eftir snjóflóð í Grikklandi Brenndu rangt lík Leita í rústum íbúðahúsa Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Semja aftur um vopnahlé Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Mun funda með Trump „í náinni framtíð“ Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Sjá meira