Innlent

Ökumaður gripinn tvisvar á þrettán mínútum

Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar
Lögreglan á Selfossi hafði afskipti af ökumanni á þrítugsaldri fyrir of hraðan akstur með þrettán mínútna millibili.

Hann var gripinn á Suðurlandsveginum vestan við Hveragerði á leið til Reykjavíkur, fyrst á 112 kílómetra hraða og svo á 122.

Að sögn lögreglu nemur sektin fyrir athæfið hátt í hundrað þúsund krónum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×