Áframhaldandi spenna í Íran 21. júlí 2009 05:45 æðstu leiðtogar Ayatollah Ali Khamenei hélt ræðu í Teheran í gær og Ahmadinejad forseti og aðrir embættismenn sátu við hlið hans. fréttablaðið/ap
Æðsti leiðtogi Írans, Ayatollah Ali Khamenei, varaði stjórnarandstöðu landsins í gær við því að halda áfram mótstöðu sinni. Viðvörunin kom í kjölfar þess að fyrrverandi forseti Írans, Mohammad Khatami, kallaði eftir þjóðaratkvæðagreiðslu um lögmæti ríkisstjórnarinnar. Það sé eina leiðin út úr því ástandi sem nú ríki í landinu. Khatami gagnrýndi klerkastjórnina óbeint með því að segja að óháðir aðilar, sem almenningur gæti treyst, yrði að annast slíka kosningu. Klerkastjórnin hafði umsjón með forsetakosningunum. Annar fyrrum forseti, Akbar Hashemi Rafsanjani, hefur gagnrýnt æðsta leiðtogann og forsetann. Á föstudag krafðist hann þess að öllum þeim sem voru handteknir í mótmælum eftir forsetakosningarnar yrði sleppt. Rafsanjani er hátt settur meðal æðstu klerka landsins og stuðningur hans því mikilvægur fyrir stjórnarandstöðuna. Leiðtogi hennar, Mir Hossein Mousavi, lét hörð orð falla í garð stjórnarinnar og Khamenei sjálfs í gær. Hann sagði að íranska þjóðin hefði verið móðguð með ásökunum um að mótmælin eftir forsetakosningarnar í landinu hefðu verið skipulögð af útlendingum. Þá sagði hann klerkastjórnina nú þurfa að takast á við nýjan hlut; þjóð sem hefði verið vakin og ætlaði að verja afrek sín. - þeb
Mest lesið „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Erlent Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Innlent Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun Innlent Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Hormússundi lokað á ný Erlent Fleiri fréttir Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Sjá meira