Flugstjórinn var síðastur frá borði 16. janúar 2009 18:39
Flugstjórinn sem nauðlenti farþegaþotu sinni á Hudson fljótinu í New York fór síðastur frá borði eftir að hafa fullvissað sig um að enginn farþegi væri eftir. Það var um tveim mínútum eftir að A320 farþegaþotan fór í loftið sem báðir mótorarnir misstu afl. Talið er að þeir hafi stíflast þegar vélin flaug í gegnum fuglager. Flugmennirnir sendu út neyðarkall og flugumferðarstjórar buðu þeim að snúa aftur til La Guardia flugvallar. Aflvana flugvélar missa bæði hraða og hæð í beygjum og hinn 57 ára gamli Chasley Sullenburger flugstjóri taldi útilokað þeir næðu að svífa aftur til La Guardia. Það hefði kostað 180 gráðu beygju . Hann bað um að fá að nauðlenda á Teterboro flugvelli sem var þeim á vinstri hönd í aðeins um 90, gráðu beygju. Þegar til kom þóttist hann sjá að þeir næðu ekki þangað heldur. Þá ákvað hann að lenda á Hudson fljóti. Við farþegana sagði Sullenburger; "Búið ykkur undir skell því við erum að fara niður." Airbus 320 þotan sveif niður að fljótinu og orrustuflugmaðurinn fyrrverandi sveigði henni mjúklega til og frá þartil hann var yfir miðju fljótinu. Farþegar hafa lýst sjálfri lendingunni sem töluverðum skelli, en einn sagði að hann hefði ekki verið mikið meiri en við aftanákeyrslu í bíl. Vélin flaut á fljótinu og farþegar og flugfreyjur opnuðu alla neyðarútganga. Sumir fóru út á vænginn en aðrir sátu á uppblásnum flóttarennum í dyrunum. Enginn skelfing greip um sig og farþegarnir hjálpuðu hvor öðrum við að komast út. Nálægar ferjur og bátar fóru á fullri ferð að vélinni og byrjuðu að bjarga farþegunum um borð. Björgunarsveitir voru sömuleiðis fljótar á vettvang og fóru inn í vélina til þess að sækja þá sem af einhverjum ástæðum komust ekki út af sjálfsdáðum. Síðastur til að yfirgefa vélina var Chesley Sullenberger. Hann fór ekki frá borði fyrr en hann hafði gengið tvisvar um farþegarýmið til þess að fullvissa sig um að þar væri enginn eftir.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Sjá meira