Erlent

Obama kominn til Þýskalands

Barack Obama Bandaríkjaforseti er nú kominn til Þýskalands í opinbera heimsókn þar sem hann mun meðal annars eiga viðræður við Angelu Merkel kanslara landsins. Leiðtogarnir hittast í dag í austurþýsku borginni Dresden. Obama mun einnig skoða útrýmingarbúðir Nazista í Buchenwald auk þess sem hann mun heimsækja Bandaríska hermenn sem liggja slasaðir á sjúkrahúsi eftir hernaðaraðgerðirnar í Írak og í Afganistan. Forsetinn kom til Þýskalands frá Egyptalandi þar sem hann talaði fyrir breyttum áherslum í samskiptum Bandaríkjanna við hinn múslimska heim.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×