Erlent

Kallar eftir nýju upphafi

í kaíró Forsetinn hélt ræðu sína í Háskólanum í Kaíró í gær. Þar sagðist hann meðal annars vilja eyða staðal­ímyndum Vesturlanda um múslima og öfugt. Þá vitnaði hann í Kóraninn í ræðu sinni. fréttablaðið/ap
í kaíró Forsetinn hélt ræðu sína í Háskólanum í Kaíró í gær. Þar sagðist hann meðal annars vilja eyða staðal­ímyndum Vesturlanda um múslima og öfugt. Þá vitnaði hann í Kóraninn í ræðu sinni. fréttablaðið/ap

Barack Obama Bandaríkjaforseti kallaði eftir nýju upphafi í samskiptum Bandaríkjanna og múslima í ræðu sinni í Kaíró í Egyptalandi í gær. Hann sagði að binda þyrfti enda á vítahring tortryggni og ósættis. Í sameiningu væri hægt að takast á við hryðjuverkamenn og öfgastefnur um allan heim og vinna að friði í Mið-Austurlöndum.

Obama talaði um friðarviðræður í Mið-Austurlöndum, Íran, stríðin í Afganistan og Írak og Al-Kaída. Hann sagði íslam ekki vera hluta af vandamálinu í baráttunni gegn hryðjuverkum, heldur mikilvægan hluta þess að stuðla að friði.

Ræða Obama fékk góð viðbrögð, meðal annars frá talsmanni Hamas-samtakanna í Palestínu, sem sagði breytingar á orðum Obama og ræðum George Bush á sínum tíma. Fyrrverandi varaforseti Írans tjáði sig líka um ræðuna og sagði hana sárabætur fyrir það fjandsamlega umhverfi sem hefði verið búið til í tíð Bush. Þá sagði hann ræðuna geta verið fyrsta skrefið í því að eyða ranghugmyndum Vesturlanda um múslimaheiminn og öfugt.

Obama heldur í dag til Þýskalands þar sem hann mun ræða við Angelu Merkel kanslara. Á morgun verður hann í Frakklandi, áður en hann heldur aftur til Bandaríkjanna.- þeb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×