Íslensk kona myrt af eiginmanni sínum í New York 2. janúar 2009 13:40
Íslensk kona búsett í Bandaríkjunum, Isol Cotto, var myrt af eiginmanni sínum á gamlársdag á heimili hennar í Marbletown í New York ríki. Maðurinn, William Cotto, sem var lögreglumaður á eftirlaunum, skaut sjálfan sig til bana skömmu eftir ódæðið. Isol, sem var 49 ára gömul, hafði kært eiginmanninn fyrir heimilisofbeldi og hafði hún farið fram á skilnað. Hann var handtekinn daginn fyrir gamlársdag en leysti sig út gegn tryggingu. Hann fór síðan rakleiðis heim til konunnar, braust inn til hennar og skaut hana til bana með haglabyssu. Þegar lögregla kom að húsi konunnar var hún látin. Maðurinn fannst skömmu síðar á bensínstöð í nágrenninu og hafði hann skotið sig til bana. Þegar Cotto var handtekinn gerði lögregla upptæk byssur og önnur vopn á heimili hans og segir lögregla óljóst hvernig hann hafi orðið sér úti um haglabyssuna sem hann notaði við ódæðið. Eftir handtökuna var Cotto dæmdur í nálgunarbann og skipað að halda sér frá Isol. Nágranni hennar segir við staðarblaðið Daily Freeman að sambúð þeirra hafi verið afar stomasöm og að háreysti hafi oft verið frá húsi þeirra. Isol lætur eftir sig tvær dætur. Önnur þeirra er þrjátíu og tveggja ára búsett á Íslandi. Hin er 22 ára. Hún var búsett hjá móður sinni og mun hún hafa orðið vitni að harmleiknum. Nánar verður fjallað um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.
Mest lesið Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Sjá meira