Samfélagsþjónusta í uppnámi vegna veðurs Atli Steinn Guðmundsson skrifar 9. júní 2009 08:12
Breskur fíkniefnasali fór beint inn í fangaklefa þegar hann þverneitaði að gegna samfélagsþjónustu af óvenjulegri ástæðu. David Houlsby er 23 ára gamall fíkniefnasali frá Newcastle-upon-Tyne. Hann var gripinn við iðju sína og sigldi sína leið gegnum réttarkerfið. Þar sem brotið var ekki stórvægilegt að þessu sinni bauðst Houlsby að taka hluta refsingarinnar út sem þjónustu við samfélagið og var um útivinnu að ræða. Þremur tímum eftir að starfið hófst gekk Houlsby á fund skilorðsfulltrúa síns og lagði kröfur sínar skýlaust á borðið: Hann vildi fá að fara heim af því að það rigndi. Þegar tillögunni var vísað kurteislega á bug brást Houlsby hinn versti við. Hann veitti flaumi fúkyrða yfir fulltrúann og hótaði honum öllu illu. Ekki var þetta í fyrsta sinn sem fanginn lét skoðanir sínar uppi. Þegar hann var dæmdur á sínum tíma kvartaði hann yfir því við réttinn að dómurinn væri allt of strangur og auk þess mannréttindabrot. Þegar Houlsby kom á ný fyrir dómara eftir stutta samfélagsþjónustu var hann sendur beint inn í klefa með þeim rökstuðningi að hann gæfi dómaranum fárra kosta völ. Houlsby hefur nú lofað bót og betrun en þarf þó að líkindum að ljúka sinni afplánun innan múranna frekar en við störf í þágu samfélagsins.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira