Erlent

Brown vill Darling burt úr ríkisstjórninni

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Hermt er að Gordon Brown vilji Darling burt úr ríkisstjórninni. Mynd/ AFP
Hermt er að Gordon Brown vilji Darling burt úr ríkisstjórninni. Mynd/ AFP
Gordon Brown, forsætisráðherra Breta, er reiðubúinn til þess að skipta Alistair Darling út úr fjármálaráðuneytinu í staðinn fyrir Ed Balls menntamálaráðherra og nánasta pólitíska samherja sinn. Þetta hefur vefútgáfa breska blaðsins Times eftir hátt settum embættismönnum úr Downingstræti.

Hermt er að forsætisráðherrann vilji að skiptin fari fram í næstu viku eftir sveitastjórna- og Evrópuþingskosningarnar. Times segir jafnframt að með því að gera þessar breytingar gæti Brown verið að taka mikla pólitíska áhættu. Mandelson viðskiptaráðherra sé einn þeirra sem hafi varað Brown við þessu.

Íslendingar minnast Darlings helst fyrir samskipti hans við Árna Mathiesen, fyrrverandi fjármálaráðherra, sem urðu til þess að hryðjuverkalögum var beitt gegn Íslendingum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×