Erlent

Blæs á gagnrýni á útnefningu dómara

Soniu Sotomayor verðandi Hæstaréttardómari.
Soniu Sotomayor verðandi Hæstaréttardómari.
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, blæs á alla gagnrýni á útnefningu Soniu Sotomayor sem hæstaréttadómara og vonast til þess að Öldungadeild þingsins muni styðja ákvörðun hans sem fyrst.

Ýmsir hafa gagnrýnt lögmannsferil Sotomayors og fyrri yfirlýsingar. Hún sagði meðal annars árið 2001 að dómarar úr röðum spænskættaðra kvenna myndu oft komast að betri niðurstöðu en hvítir karlmenn.

Obama sagði í vikulegu útvarpsávarpi sínu í gær að hann vonaðist til þess að Sotomayor yrði orðin dómari þegar að Hæstiréttur kemur til starfa í október.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×