Erlent

Heimilislaus Slumdog stjarna - rekinn út með priki

Azharuddin Mohammed Ismail
Azharuddin Mohammed Ismail
Heimili einnar barnastjörnunnar úr Óskarsverðlaunamyndinni, Viltu vinna milljarð (Slumdog Millionaire), í Bombay hefur verið rifið niður af yfirvöldum. Fréttir herma að lögreglan hafi slegið strákinn, Azharuddin Mohammed Ismail, með bambuspriki áður en þeir skipuðu honum að yfirgefa heimilið. Yfirvöld hafa haldið því fram að hann og aðrir meðlimir fjölskyldu hans hafi sest að á landi í eigu yfirvalda án leyfis.

Ismail lék barnahluta hlutverks eins af aðalleikurum myndarinnar sem rakaði inn átta Óskarsverðlaunum. „Við erum heimilislaus, við getum hvergi farið," sagði Ismail eftir niðurrifið.

Fjölskyldan bjó í tímabundnu húsnæði sem gert var úr plasti sem vafið var utan um bambus í fátækrahverfi nærri Bombay.

Ismail segist hafa verið í fastasvefni þegar lögreglan kom og skipaði fjölskyldunni að hypja sig út rétt áður en húsið var rifið niður. Fjölskyldan segist ekki hafa vitað um þessi áform stjórnvalda sem hyggjast búa til almenningsgarð þar sem húsið var.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×