Erlent

Bill Clinton í Norður Kóreu

Bill Clinton fyrrverandi forseti Bandaríkjanna er nú staddur í Norður Kóreu til þess að reyna að fá tvo bandaríska blaðamenn lausa úr fangelsi. Þær Laura Ling og Euna Lee voru handteknar í mars fyrir að ferðast ólöglega í landinu og voru þær síðan dæmdar í tólf ára þrælkunarvinnu.

Clinton er annar fyrrverandi forseti bandaríkjanna sem heimsækir þetta einangraða land en Jimmy Carter kom þangað árið 1994. Norður kóreskir fjölmiðlar segja að fréttakonurnar hafi viðurkennt að hafa farið inn í landið ólöglega en fjölskyldur þeirra staðhæfa að það hafi aldrei verið ætlun þeirra að fara yfir landamærin.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×