Clinton frelsaði bandarískar blaðakonur 4. ágúst 2009 23:30 Bill Clinton.
Leiðtogi Norður - Kóreu, Kim Jong Il, hefur náðað tvær bandarískar blaðakonur sem þar eru í haldi, aðeins nokkrum klukkustundum eftir að Bill Clinton, fyrrum forseti Bandaríkjanna, kom í óopinbera heimsókn þangað. Heimsókn Bill Clintons var afar óvænt en hann er sennilega frægastur til þess að heimsækja Norður - Kóreu síðan árið 2000 en þá heimsótti Madeleine Albright útlagaríkið alræmda. Bandarísk yfirvöld sögðu í fréttum í dag að heimsókn Clintons væri einkaheimsókn, hann væri ekki þar á vegum ríkisstjórnarinnar. Menn telja það þó ekki alrétt. Bandarísk yfirvöld, reyndar flest siðuð ríki veraldar, hafa haft talsverðar áhyggjur af eldflaugatilraunum Norður-Kóreumanna. Að auki hafa Norður-kóresk yfirvöld haldið því fram að þau eigi kjarnorkuvopn. Þess trúa þó Bandaríkin ekki. Clinton átti fund með Kim Jong Il, leiðtoga Norður - Kóreu í dag. Þar bað hann að blaðakonurnar tvær yrðu látnar lausar. Að auki hitti Clinton þær á fundi sem mun hafa verið mjög dramatískur. Konurnar voru handteknar fyrr á árinu vegna gruns um njósnir og dæmdar í 12 ára þrælkunarvinnu í landinu. Þær störfuðu fyrir fjölmiðil sem var stofnaður af Al Gore, fyrrum forsetaframbjóðanda. Talið er að þær hafi ætlað að flytja fréttir frá Norður - Kóreu. Báðar eru þær af asískum uppruna. Clinton er farinn af landi brott og er á leiðinni til Bandaríkjanna. Norður - kóreska fréttarstofur, sem eru allar undir járnhæl yfirvalda, segja Clinton hafa grátbeðið um að konurnar yrðu náðaðar og beðist alúðlega afsökunar á gjörðum þeirra. Þá segja fréttir þar í landi að hugsanlega sé eitthvað að þokast til í samskiptum Norður - Kóreu og Bandaríkjanna. Þessu öllu er neitað af talsmönnum Hvíta hússins.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira