Erlent

Dagblöð fá aðstoð í Bandaríkjunum

Óli Tynes skrifar

Yfirvöld í Bandaríkjunum eru byrjuð að hlaupa undir bagga hjá dagblöðum sem hafa átt mjög undir högg að sækja undanfarin ár.

Jafnvel stórblöð eins og New York Times og Washington Post eiga í fjárhagsörðugleikum og óteljandi minni blöð vítt og breitt um landið hafa lagt upp laupana.

Erfiðleikarnir hafa ágerst undanfarin misseri þar sem auglýsingatekjur hafa minnkað stórlega vegna kreppunnar.

Það var Chris Gregoire ríkisstjóri í Washington sem reið á vaðið með því að gefa blöðum sem gefin eru út í ríkinu verulegan skattaafslátt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×