Erlent

Geimurinn er í rusli

Óli Tynes skrifar
Hvítu dílarnir eru geimrusl.
Hvítu dílarnir eru geimrusl. Mynd/NASA

Það eru ekki til neinar hárnákvæmar tölur en talið er að yfir 600 þúsund manngerðir hlutir séu á braut um jörðu.

Meðfylgjandi mynd er tölvugerð, frá Bandarísku geimferðastofnuninni og gefur aðeins hugmynd um umfangið og fjöldann.

Geimruslið er í mismikilli hæð yfir jörðu. Geimferjan Atlantis sem nú er á leiðinni til viðgerðar á Hubbel stjörnusjónaukanum er í mun meiri hættu á að rekast á geimrusl en í venjulegum geimferðum.

Langflestar geimferðir í dag eru til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar sem er í um 400 kílómetra hæð yfir jörðu.

Hubble er hinsvegar í tæplega 600 kílómetera hæð og þar er geimruslið miklu þéttara en það er neðar.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×