Þrír starfsmenn Rauða krossins fallnir á Sri Lanka 13. maí 2009 12:24
Þrír starfsmenn Alþjóða Rauða krossins hafa fallið í átökum stjórnarhers og uppreisnarmanna Tamíltígranna á norðurhluta Srí Lanka. Rauði krossinn eru einu alþjóðasamtökin sem enn eru með starfsmenn á sínum snærum á átakasvæðunum á norðurhluta Srí Lanka. Greint var frá því í morgun að innfæddur starfsmaður samtakanna, þrjátíu og eins árs gamall starfamður, og móðir hans hefðu fallið í stórskotaliðsárásum en ekki mun vitað hvort þar var um að ræða skothríð stjórnarhers eða uppreisnarmanna Tamíltígranna. Tveir innfæddi starfsmenn Rauða krossins til viðbótar hafa fallið í átökum stríðandi fylkinga en tuttugu innfæddir starfsmenn samtakanna munu á þeirra vegum á bardagasvæðinu. Í gær sögðu fulltrúar Rauða krossins að miklir bardagar hefðu komið í veg fyrir að skip á vegum samtakanna kæmist til hafnar til að flytja burt sjúka og særða almenna borgara frá átakasvæðinu. Óskað var eftir að skipið gæti komist til hafnar og betur yrði tryggt að hægt væri að flytja fólk um borð. Fregnir hafa borist af því að á meðan ekki hafi verið hægt að sækja særða og flytja um borð í skipið hafi sprengjur skollið á bráðabirgðasjúkrahúsi og tugir fallið. Sérfræðingar telja að átök eigi eftir að magnast enn frekar nú þegar hyllir undir log mánaðarlangra þingkosninga á Indlandi þar sem Tamílar eru fjölmennir. Síðustu kjörstöðum er lokað í dag og talning hefst um næstu helgi. Búist er við að stórsókn hefjist fljótlega eftir daginn í dag og stjórnarherinn reyni að ganga endanlega milli bols og höfuðs á uppreisnarmönnum Tamíltígranna og binda þannig enda á stríð sem geisað hefur í aldarfjórðung. Óttast hjálparsamtök að mannfall meðal almennra borgara, ekki síst Tamíla, verði þá gríðarmikið.
Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Innlent Fleiri fréttir Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sjá meira