Varað við sjálfsmorðshneigð af völdum reykingalyfja Atli Steinn Guðmundsson skrifar 2. júlí 2009 08:16
Tvær tegundir lyfja, sem hjálpa fólki við að hætta reykingum, verða hér eftir merktar með varnaðarorðum um geðræn áhrif á bandarískum markaði. Það eru Zyban og Chantix sem bandaríska matvæla- og lyfjaeftirlitið hefur fyrirskipað að skuli merkt þannig að því sé komið til neytandans á skilmerkilegan hátt að notkun þeirra geti haft neikvæð áhrif á geðslag þeirra. Áhrifin virðast ekki vera neitt smáræði þar sem hér er verið að vara við þunglyndi og sjálfsmorðshugleiðingum sem notkun lyfjanna getur haft í för með sér. Doktor Janet Woodcock hjá lyfjamatsdeild eftirlitsins segir að meta verði þessar aukaverkanir með hliðsjón af því að lyfjunum sé stefnt gegn einu stærsta heilbrigðisvandamáli heims, reykingum, en engu að síður verði að kanna það til hlítar hve algengar þessar aukaverkanir séu og síðast en ekki síst verði að vara neytendur við þeim. Síðan Chantix var sett á markað árið 2006 er vitað til þess að 98 notendur þess hafi fyrirfarið sér og 188 reynt það. Lyfjaeftirlitið gerir þó þann fyrirvara að hvorki Zyban né Chantix innihaldi nikótín og hluti vandans geti verið fráhvarfseinkenni þess. Flestir reykingamenn þekkja á eigin skinni að það er ekkert gaman að hætta að reykja þótt það borgi sig vissulega en þegar reykingalyfin eru orðin beinlínis lífshættuleg má setja spurningarmerki við það hvort tilgangurinn helgi raunverulega meðalið, í orðsins fyllstu merkingu.
Mest lesið RÚV grafi undan tilvist sinni með nýrri auglýsingu Innlent Segir Selenskí geta valið um að binda enda á stríðið eða berjast áfram Erlent Flugþjónar Air Canada bjóða yfirvöldum birginn Erlent Selenskí fer aftur til Washington en í þetta sinn með Evrópu sér við hlið Erlent Ekkert bann við opnum kvíum en „skussinn borgi brúsann“ Innlent Hinn grunaði var leiðbeinandi barna í tæplega tvö ár Innlent Einn handtekinn vegna líkamsárásar og annar vegna innbrots Innlent Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Innlent Bauð manni að gista, batt hann við stól og lét hann drekka úr skál á gólfinu Innlent Ísraelsmenn handteknir fyrir að mótmæla stríðinu Erlent Fleiri fréttir Flugþjónar Air Canada bjóða yfirvöldum birginn Segir Selenskí geta valið um að binda enda á stríðið eða berjast áfram Selenskí fer aftur til Washington en í þetta sinn með Evrópu sér við hlið Ísraelsmenn handteknir fyrir að mótmæla stríðinu Evrópuleiðtogar fylkja liði í Hvíta húsið Trump sagður hlynntur afsali lands Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Selenskí mun funda með Trump Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Sjá meira