Fljúgandi furðuhlutir enn á ferð í Bretlandi Atli Steinn Guðmundsson skrifar 2. júlí 2009 08:10
Ekkert lát virðist vera á fljúgandi furðuhlutum yfir Bretlandi en tveir slíkir sáust í gærkvöldi. Eigi Bretar ekki heimsmet í fjölda tilkynninga um óþekkta hluti á flugi yfir landinu hljóta þeir að minnsta kosti að vera býsna nærri því. Síðustu misseri hafa myndir og tilkynningar um slíka hluti streymt til breska varnarmálaráðuneytisins og þarlendra fjölmiðla og í gærkvöldi kom enn eitt slíkt tilfelli upp, að þessu sinni yfir Hertfordskíri á Suðaustur-Englandi. Það voru hjónin Diane og Andy Prior sem komu auga á tvo hringlaga hluti sem flugu um skafheiðan kvöldhimininn þar sem þau voru að viðra hund sinn klukkan tæplega ellefu í gærkvöldi. Hlutirnir fylgdust að og sveigðu með að því er virtist skipulögðum hætti ýmist til hægri eða vinstri. Hjónin náðu ágætri mynd af öðrum hlutnum og er hún svo sannfærandi að breska varnarmálaráðuneytið segist nú vera að kanna hvort hugsanlegt sé að flugfar af óþekktum uppruna hafi verið á ferð í breskri lofthelgi í gærkvöldi. Ekki eru nema fáir mánuðir síðan skrifstofumaður tók myndband af sívalningslaga hlut sem sveif yfir Wales og margir aðrir hlutir hafa sést yfir Bretlandi síðasta árið. Óvíst er hvað dregur þennan fjölda furðuhluta að landinu en varla er það blómlegt efnahagsástand.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira