Erlent

Fundu nærri 700 kíló af kóki

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Kókaínstaflar
Kókaínstaflar
Franskir tollverðir lögðu hald á 684 kíló af kókaíni við reglubundið eftirlit í flutningabíl sem var að koma frá Spáni í dag.

Tollayfirvöld í Frakklandi segja að þetta sé einn stærsti fíkniefnafundur í þeirra sögu. Talið er að verðmæti fíkniefnanna nemi 4600 milljónum íslenskra króna.

Tveir voru handteknir, grunaðir um að tengjast smyglinu, en ekki hefur verið upplýst um það hverjir þeir eru eða af hvaða þjóðerni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×