Erlent

Þjóðverjar átta sig á umfangi STASI

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Höfuðstöðvar STASI eru nú safn.
Höfuðstöðvar STASI eru nú safn.

Þjóðverjar eru núna fyrst að átta sig á því hve yfirgripsmikil starfsemi austurþýsku leyniþjónustunnar var á dögum kalda stríðsins.

Núna í haust verða 20 ár liðin frá falli Berlínarmúrsins og eftir því sem dregur úr allri þeirri leynd sem hvíldi yfir hinu gamla sovéska Austur-Þýskalandi átta Þjóðverjar sig æ betur á því hve mikið bákn hin illræmda Staatssicherheit, eða öryggisstofnun ríkisins, var í raun.

Hjá STASI störfuðu 91.000 manns í fullu starfi og má segja að augu og eyru stofnunarinnar hafi verið nær alls staðar í Þýskalandi, austan sem vestan megin múrs. Sagnfræðingar hafa legið í umfangsmiklu skjalasafni leyniþjónustunnar og grafið þar upp ýmis vel geymd leyndarmál.

Það er löngu vitað að STASI þjálfaði á laun hópa sem höfðu það að markmiði að valda óróa í Vestur-Þýskalandi á árunum 1972 - 1989 en í þessari viku uppgötvaðist að lögreglumaðurinn sem skaut námsmanninn Benno Ohnesorg til bana árið 1967 og kom af stað gríðarlegri mótmælaöldu um allt landið var njósnari á vegum STASI sem vann að því að koma verkefnum STASI vestan við múrinn í framkvæmd. Lögreglumaðurinn hét Karl-Heinz Kurras en njósnaði fyrir STASI allar götur frá 1955 undir dulnefninu Otto Bohl.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×