Erlent

Húsaleiga í Kristjaníu og ekkert múður

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Íbúarnir milli vonar og ótta fyrir utan réttinn í gær.
Íbúarnir milli vonar og ótta fyrir utan réttinn í gær.

Íbúar fríríkisins Kristjaníu í Kaupmannahöfn sjá nú fram á að þurfa að greiða leigu af þeim húsum sem þeir hafa haldið til í ókeypis fram að þessu eftir að Eystri-Landsréttur Danmerkur úrskurðaði í gær að lög sem sett voru árið 2004 væru ekki brot á mannréttindum. Lögin skylda íbúana, sem eru um 850, til að greiða leigu og eru liður í þeirri viðleitni stjórnvalda að breyta svæðinu í almenningsgarð og losa það við það orðspor sem hefur fylgt því allar götur síðan 1971 en stór hluti eiturlyfjasölu Kaupmannahafnar hefur löngum farið fram í Kristjaníu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×