Týndi síma og fyrirfór sér Atli Steinn Guðmundsson skrifar 23. júlí 2009 07:20 iPhone. MYND/Getty Images
Verkfræðingi hjá kínverskum framleiðanda iPhone-síma varð svo mikið um þegar ný frumgerð símans týndist að hann stökk fram af tólftu hæð á vinnustað sínum. Sun Danyong var 25 ára gamall og þótti ákaflega samviskusamur í starfi sínu sem hann sinnti af hinni mestu alúð. Danyong var nýútskrifaður úr verkfræðináminu og þótti það mikill hvalreki á fjörur farsímaframleiðandans Foxconn í borginni Shenzhen þegar hann hóf þar störf. Eitthvað fór úrskeiðis þegar Danyong sendi 16 glæný eintök af frumgerð nýjustu útgáfu iPhone-símans til höfuðstöðva Apple í Bandaríkjunum sem á fyrirtækið í Kína. Af einhverjum ástæðum komust eingöngu 15 þeirra á leiðarenda en einn virtist hreinlega hafa gufað upp. Slíkt þykir alvarlegt mál hjá fyrirtæki sem gerir allt til að tækninýjungar leki ekki út áður en þær koma á markað og var Danyong kallaður á teppið og yfirheyrður um öll smáatriði málsins. Fékk þetta svo á hann að hann fór upp á tólftu hæð byggingarinnar og kastaði sér fram af. Í kjölfarið fór fram ítarleg rannsókn og voru nokkrir starfsmenn, sem taldir voru geta borið ábyrgð á símahvarfinu, reknir. Stjórnarformaður Foxconn segir fyrirtækið munu greiða fyrir útför Danyongs en bætir því þó við að hann hafi ekki haft neitt leyfi til að fyrirfara sér.
Mest lesið Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Erlent Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Innlent „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Innlent Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Erlent Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu Innlent Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Erlent Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Innlent Öskurrifust við leigubílstjóra: „Farið til helvítis, þið munuð borga mér“ Innlent Stefán Kristjánsson er látinn Innlent Barnið lét foreldra sína vita af brotinu Innlent Fleiri fréttir Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sprengingar eftir eldingu Rússar helsta ógnin sem Norðmenn standi frammi fyrir Kýrskýrt að aðeins Selenskíj geti samið um landsvæði Blaðamenn drepnir í tugatali: Banvænt mynstur misræmis og mótsagna Fundað í hverju horni fyrir Alaskahitting Trump og Pútín Sjá meira