Rússnesk baráttukona myrt 16. júlí 2009 06:00
Natalia Estemirova, rúmlega fertug baráttukona fyrir mannréttindum, fannst í gær myrt í Ingúsetíu skammt frá landamærum Téténíu. Hún hefur rannsakað í þaula mannrán, morð og fleiri mannréttindabrot í Téténíu og hafði meðal annars starfað með Önnu Politkovsköju, rússnesku blaðakonunni sem var myrt í Moskvu fyrir nærri þremur árum. Hún var í gær stödd í Grosní, höfuðborg Téténíu, þegar fjórir menn neyddu hana til að fara inn í bifreið og óku á burt. Vitni heyrðu hana hrópa að verið væri að ræna sér. Nokkru síðar fannst lík hennar í vegarkanti í Ingúsetíu, rétt handan landamæra þessara héraða. Morðið var framið aðeins fáeinum klukkustundum eftir að efnt var til blaðamannafundar í Moskvu, þar sem mannréttindasamtök kynntu skýrslu um framferði Rússa í Téténíu. Þar voru færð rök fyrir því að draga ætti Vladimír Pútín forsætisráðherra og fleiri rússneska ráðamenn fyrir alþjóðlegan dómstól vegna glæpa sem framdir hafa verið í héraðinu í tengslum við tvö stríð þar undanfarin fimmtán ár. Fleiri einstaklingar, sem Estemirova hefur unnið með, hafa verið myrtir á síðustu árum. Meðal þeirra var lögfræðingurinn Stanislav Merkelov, sem var myrtur á götu í Moskvu í janúar. - gb
Mest lesið „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Erlent Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Innlent Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Innlent Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum Innlent Fleiri fréttir Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Sjá meira