Þúsund lögreglumenn drepnir í Mexíkó Óli Tynes skrifar 16. júlí 2009 13:17 Lík lögregluþjóna sem voru pyntaðir áður en þeir voru myrtir. Mynd/AP
Síðan Felipe Calderon forseti Mexíkós hóf baráttu gegn eiturlyfjahringum árið 2006 hafa yfir ellefu þúsund manns fallið í valinn. Af þeim eru yfir eittþúsund lögreglumenn. Glæpagengin reyna allt hvað þau geta til þess að halda lögreglunni og öðrum embættismönnum í skefjum. Það er reynt með mútum hótunum og svo morðum ef hitt gengur ekki. Síðast á þriðjudag fundust lík tólf lögreglumanna í skurði í héraðinu Michoacan. Þeir höfðu verið pyntaðir áður en þeir voru myrtir. Meðal annarra fórnarlamba síðustu daga var borgarstjóri í bænum Namuquipa. Hann hafði tekið virkan þátt í baráttunni gegn eiturlyfjahringunum og látið fjölmargar hótanir sem vind um eyru þjóta. Fimmtán grímuklæddir menn vopnaðir hríðskotarifflum skutu hann til bana þegar hann var á leið til vinnu sinnar á þriðjudagsmorgun. Glæpagengin eru óhugnanlega vel búin vopnum. Liðsmenn þeirra ráða yfir sprengjuvörpum, eldflaugum, handsprengjum og þungum vélbyssum auk þess sem vopnabúr þeirra eru troðfull af hríðskotarifflum og skammbyssum. Skrifstofa Sameinuðu þjóðanna sem fer með eiturlyfja og glæpamál segir að eiturlyfjahringarnir í Mexíkó reyni nú að komast inn í Evrópu og beiti við það mikilli hörku. Norðmenn hafa af því sérstakar áhyggjur. Norska blaðið Aftenposten hefur skýrt frá því að hringarnir hafi valið Osló sem dreifingamiðstöð fyrir Evrópu. Blaðið segir að það hafi verið staðfest úr mörgum áttum að útsendarar frá Mexíkó séu þegar komnir til borgarinnar til þess að undirbúa starfsemina.
Mest lesið Leita karlmanns á sjötugsaldri Innlent Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Innlent Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Erlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Innlent Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Innlent Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Þúsunda saknað og tíminn að renna út Erlent Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Innlent Fleiri fréttir Þúsunda saknað og tíminn að renna út Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Norskir nei-sinnar bæta við sig Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka Vill aðskilja bólusetningar gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum Efnt til æfinga í Taívan fyrir umfangsmikið rof á fjarskiptum Assad dæmdur til dauða í heimalandinu Réttað yfir fyrrverandi glæpaforingja vegna morðsins á Tupac Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Sjá meira