Mótmæla ofbeldi öfgahópa 12. mars 2009 06:00 Mótmælendur og kaþólskir á einu máli. Vilja ekki að borgarastyrjöld hefjist á ný.fréttablaðið/AP
Nokkur þúsund manns, jafnt kaþólskir sem mótmælendur, komu saman í Belfast á Norður-Írlandi í gær til að mótmæla ofbeldi öfgahópa, sem vilja kveikja á ný í glæðum átaka um aðskilnað frá Bretlandi. Sumir grétu og aðrir hristu höfuðið út af dauðsföllum síðustu daga. Tveir klofningshópar út úr Írska lýðveldishernum hafa myrt samtals þrjá menn í þeim tilgangi að grafa undan friðarsamkomulagi, sem gert var fyrir rúmum áratug. Áður hafði borgarastyrjöld geisað milli mótmælenda og kaþólskra á Norður-Írlandi í þrjá áratugi og kostað þúsundir manna lífið. „Ég er kaþólskur. Ég ólst upp í hverfi þar sem lögreglan var óvinurinn. Nú hafa hlutirnir svo sannarlega breyst til batnaðar,“ sagði Aidan Kane, sem mætti í mótmælagönguna með sex ára son sinn á háhesti. „Ef litli strákurinn minn hérna vill verða lögreglumaður þegar hann verður stór, þá verð ég stoltur af honum. Ég á ekki að þurfa að hafa áhyggjur af því að einhver brjálæðingur skjóti hann fyrir að vera í þjónustu samfélagsins.“ Á mánudagskvöld var lögreglumaður myrtur þar sem hann sat í lögreglubifreið í Belfast. Síðastliðinn laugardag voru tveir hermenn myrtir fyrir utan herstöð, auk þess sem tveir aðrir hermenn og tveir pitsusendlar særðust. - gb
Mest lesið Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Innlent „Auðvitað hef ég íhugað það“ Innlent Segir þekkt andlit mikið auglýst, jafnvel á kostnað málefna Innlent Venstre fá umboð til að mynda ríkisstjórn Erlent Gagnrýna myndband Miðflokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“ Innlent Myndskeiðið byggi á „netmemi og tölvuleikjamenningu“ Innlent „Beinlínis gengið í skrokk á fólki“ Innlent Borgarstjóri fer í saumana á kortafærslunum Innlent Risaflóðbylgja í Alaska talin nærri fimm hundruð metra há Erlent Formaður Heimssýnar varar við ofbeldi gangi Ísland í ESB Innlent Fleiri fréttir Venstre fá umboð til að mynda ríkisstjórn Þriggja daga vopnahlé í Úkraínu Frederiksen á fund konungs vegna þráteflis Sátu um tóman banka í sex tíma Samföngum Maxwell refsað fyrir að tjá sig Stærsta haldlagning á rafmynt í sögu Svíþjóðar Umsátur í Þýskalandi: Bankarán varð að gíslatöku Segjast aldrei hafa séð Epstein-bréfið meinta áður Ekkert vopnahlé heldur umfangsmiklar árásir í Rússlandi Farage og félagar í Reform margfalda styrk sinn í sveitarstjórnum Englands Trump hefur í hótunum við Evrópusambandið Vopnahléið enn í gildi en alls óvíst um varanlegt samkomulag Skutu hvor á annan: Saka Bandaríkjamenn um að brjóta gegn vopnahléinu Sé ekki það sama og fyrir sex árum með Covid-19 Vopnaður maður sagður hafa ógnað Andrési fyrrverandi prins Handtaka kínverskan meintan njósnara í Noregi Þrjár „brúðir ISIS“ ákærðar fyrir hryðjuverk og þrælahald Kortleggja ferðir tuga sem fóru frá borði eftir að sá fyrsti dó Trump enn með tangarhald á Repúblikanaflokknum Risaflóðbylgja í Alaska talin nærri fimm hundruð metra há Franskur floti á leið til Persaflóa Segja Írani hafa valdið meiri skaða en menn hafa viðurkennt Segja Evrópu „útungunarstöð“ hryðjuverkaógnarinnar Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Gerðu árás á Beirút í fyrsta skipti eftir að vopnahlé tók gildi Ted Turner er látinn Segja Bandaríkin enn með óásættanlegar kröfur Telja sig hafa fundið lofthjúp utan um örreikistjörnu handan við Plútó Sjá meira