Pennafærir flugmenn óskast Atli Steinn Guðmundsson skrifar 12. mars 2009 07:39 „Góðir farþegar, þetta er ritstjórinn sem talar...“
Flugfélagið Air-Asia leitar nú að flugmönnum, sem ekki er í frásögur færandi nema hvað þeir þurfa ekki að kunna að fljúga. Flugstjórar framtíðarinnar hjá AirAsia, lággjaldaflugfélagi sem er í hvað örustum vexti í Asíu, þurfa ekki einu sinni að hafa stigið fæti um borð í flugvél. Flugfélagið efnir einfaldlega til ritgerðarsamkeppni á vefnum og velur starfsfólk sitt eftir því hverjir þar verða hlutskarpastir við að rökstyðja hvers vegna þeir ættu að hreppa hnossið og fá starf hjá félaginu. Sniðugt lággjaldaflugfélag, það ætlar sem sagt að hafa gjöldin svo lág að það þurfi ekki að fljúga neitt. Nei, reyndar er það nú ekki svarið. AirAsia ætlar hins vegar að tína sína ávexti beint af trénu og þjálfa starfsfólkið alveg frá grunni og er flugnám frá a til ö þar innifalið. Jæja, það er reyndar ekki rétt að það sé eingöngu nóg að vera góður penni á bloggsíðunni sinni. Væntanlegir umsækjendur þurfa að vera milli 18 og 28 ára, við sæmilega heilsu auk þess sem þeir þurfa að tala ensku og malasísku hnökralaust. Síðast en ekki síst mega umsækjendur ekki vera blindir. Umsóknarfrestur er til 15. maí.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Fleiri fréttir Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Sjá meira