Rod Blagojevich í raunveruleikaþátt hjá NBC Atli Steinn Guðmundsson skrifar 15. apríl 2009 08:20
Rod Blagojevich, fyrrum ríkisstjóri Illinois, þurfti ekki að búa við atvinnuleysi lengi. Blagojevich vann sér það til frægðar í fyrra að ætla að falbjóða öldungadeildarþingsæti Baracks Obama í Illinois þegar hinn síðarnefndi hyrfi til annarra starfa. Þrátt fyrir að þetta hafi allt verið eintómur misskilningur að sögn ríkisstjórans, sem var nú bara að slá á létta strengi, eins og hann vildi meina við réttarhöldin, var hann sviptur embætti sínu. Menn á borð við Rod Blagojevich stoppa þó að jafnaði stutt á atvinnuleysisskrám enda hefur sú orðið raunin að NBC-sjónvarpsstöðin hefur samið við ríkisstjórann fyrrverandi um að vera ein af tíu stjörnum þáttarins Ég er frægur - komið mér burt héðan, eða I´m a Celebrity - Get Me Out of Here sem hefur göngu sína í sumar. Eins og við er að búast er um raunveruleikaþátt að ræða og söguþráðurinn þar með auðvitað gegnheill. Þátttakendurnir tíu, allt frægir einstaklingar en með ólíkan bakgrunn, keppa í fjársöfnun til góðgerðarmála að eigin vali. Gráupplagt fyrir menn sem hafa reynt að afla sér fjár með ýmsum hætti enda er Rod karlinn talinn sigurstranglegur, að því gefnu að dómstólar veiti samþykki sitt fyrir þátttöku hans.
Mest lesið Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Erlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Fleiri fréttir Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Sjá meira