Flykkjast í ófrjósemisaðgerðir í kreppunni Atli Steinn Guðmundsson skrifar 15. apríl 2009 07:19
Bandaríkjamenn gangast nú undir ófrjósemisaðgerðir sem aldrei fyrr. Frá þessu er greint í New York Times og segjast sérfræðingar sem þar er rætt við sjá glöggan svip með ástandinu sem ríkti í kreppunni miklu á fjórða áratug síðustu aldar en þá hafi fæðingartíðni snarlækkað í Bandaríkjunum. Minnkuð löngun til barneigna mun vera fylgifiskur harðæris og þess að fólk sér fram á erfiða tíma. Læknir nokkur í New York segist hafa framkvæmt 13 prósent fleiri aðgerðir það sem af er þessu ári en á sama tíma í fyrra. Merki um þrengingar eru fleiri. Marriott-hótelin í Bandaríkjunum eru hætt að gefa gestum sínum ókeypis eintak af dagblaðinu USA Today en slíkt hefur verið fastur liður þar á bæ fram að þessu. Við þetta minnkar sala blaðsins um 18 milljónir eintaka á ársgrundvelli sem svo auðvitað hefur áhrif á rekstur þess. Og dæmin eru enn fleiri. Hollenskur sjónvarpsþáttaframleiðandi ætlar að hefja gerð raunveruleikaþáttanna Someone's Gotta Go, Einhver verður að fara, þar sem starfsfólk illa staddra fyrirtækja ákveður sjálft hverjum verður sagt upp næst. Síðasta dæmið, þótt þau séu reyndar mun fleiri, er frá lögmannsstofu í New York sem greiðir nýjum starfsmönnum bónus fyrir að taka sér ársfrí - launalaust.
Mest lesið Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Erlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Fleiri fréttir Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Sjá meira