Erlent

Tsvangirai óttast upplausn hrökklist Mugabe frá

Morgan Tsvangirai, forsætisráðherra Zimbabwe.
Morgan Tsvangirai, forsætisráðherra Zimbabwe. Mynd/AP
Morgan Tsvangirai forsætisráðherra Zimbabwe sagði í viðtali við Reuters fréttastofuna í dag að það gæti valdið upplausn í landinu ef Robert Mugabe forseti hrökklaðist frá völdum vegna þrýstings frá Vesturlöndum. Þetta útspil kemur vægast sagt á óvart þar sem þeir Tsvangirai og Mugabe eru svarnir andstæðingar. Mugabe hefur ítrekað reynt að koma Tsvangirai fyrir kattarnef.

Eftir hatrömm átök tókst þó þeim óvinunum að mynda þjóðstjórn. Í viðtalinu við Reuters sagði forsætisráðherrann um Mugabe: „Þessi maður er hluti af lausn vandans, hvort sem þér líkar vel við hann eða ekki."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×