Erlent

Kysstu mig Kata

Óli Tynes skrifar
PBY Catalina flugbátur var meðal flugvéla á flugsýningu í Sviss í dag.
PBY Catalina flugbátur var meðal flugvéla á flugsýningu í Sviss í dag. Mynd/AP

Fyrir allnokkrum árum var ekki óalgengt í höfuðborginni að sjá flugvélar af þessari gerð renna yfir Öskjuhlíðina á leið til lendingar á Reykjarvíkurflugvelli.

Það er hinsvegar ekki Öskjuhlíðin sem er þarna í bakgrunni heldur einhver hóll í Sviss (þar sem mun vera nóg af þeim).

Þessi Catalina flugbátur tók í dag þátt í flugsýningu sem haldin var í þvísa landi.

Catalina flugbátarnir gegndu mikilvægu hlutverki í síðari heimsstyrjöldinni. Bæði við kafbátaleit og flutninga.

Eftir styrjöldina voru þeir mikið notaðir í löndum þar sem flugvellir voru af skornum skammti. Meðal annars á Íslandi.

Þar voru þeir elskaðir bæði af farþegum...og ekki síður flugmönnum.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×