Ummerki um metangas á yfirborði Mars Atli Steinn Guðmundsson skrifar 19. janúar 2009 07:55 Mars.
Ummerki um metangas hafa fundist á yfirborði Mars og getur það gefið til kynna einhvers konar líffræðilega virkni. Meira en 90 prósent af metangasi hér á jörðinni á rætur sínar að rekja til einhvers konar lífrænna vistkerfa og því þykir Michael Mumma og rannsóknarhópi hans hjá bandarísku geimferðastofnuninni NASA það sæta miklum tíðindum að finna merki um metangas á Mars. Þetta gæti gefið til kynna einhvers konar líffræðilega virkni eða jafnvel frumstætt líf af einhverju tagi. Plöntulíffræðingurinn Chris McKay tekur í sama streng og segir að sé virkilega um metangas að ræða á Mars sé það verulega spennandi. Vísindamönnunum tókst að greina metangasið með því að beita saman stjörnukíki og innrauðum rófgreini með háu tvístri, segi það hugtak einhverjum eitthvað. Aldur metangassins er hins vegar óræður og erfitt að segja til um hvort það hafi nýlega orðið til eða sé ævafornt. Reiknað hefur verið út að metangas ætti að endast um 300 ár í loftslaginu á Mars en breytingar á magni gassins gefa til kynna að það eyðist mun hraðar. „Eitthvað er að dæla því út og eitthvað er að éta það upp," eins og McKay orðar það. Enn ein ráðgáta á rauðu plánetunni.
Mest lesið Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Sjá meira