Stærsta raftækjasýning heims svipur hjá sjón Atli Steinn Guðmundsson skrifar 9. janúar 2009 08:36 Veruleg breyting hefur orðið á gestafjölda CES-sýningarinnar. MYND/Reuters
Raftækjasýningin í Las Vegas, sem alla jafna laðar að sér mikinn fjölda gesta, er ekki nema svipur hjá sjón í ár. Auðir básar, aðgerðalaust veitingasölufólk og meðalstór gestahópur sem röltir í rólegheitum um svæðið er það sem vekur fyrst eftirtekt á því sem fram að þessu hefur að jafnaði verið stærsta tæknisýning heims og gengur undir heitinu CES eða Consumer Electronics Show. Sýningin, sem haldin er í spilaborginni Las Vegas, er þó síður en svo rafmögnuð í ár. Af þeim 130.000 manns sem skráðu sig sem væntanlega gesti virðast einhverjir hafa forfallast. Undanfarin ár hefur CES-sýningunni verið lýst sem hálfgerðum vígvelli, slík hefur aðsóknin verið, og fáar ef nokkrar tæknisýningar komist með tærnar þar sem hún hefur hælana. Bill Gates, sem þá var stjórnarformaður Microsoft, ávarpaði troðfullt hús gesta á sýningunni 2007 en nú er svo komið að kynningarfulltrúarnir á bás Microsoft hafa lítið annað að gera en spjalla hver við annan. Gestir og talsmenn fyrirtækja minnast sýninga síðustu ára þar sem fólk átti yfirleitt fullt í fangi við að koma sér milli staða vegna manngrúans. Hvað er svo sem við þessu að segja? Neytendur hafa sennilega um annað að hugsa þessa dagana en að sanka að sér dýrum leikföngum í formi heimilistækja. Það er eitthvað svo 2007.
Mest lesið Vaktin: Mikilvæg fundarhöld í Washington Erlent Kannast ekki við lýsingar leigubílstjóra Innlent Verði að bregðast við vinsældum meintra iðnaðarmanna á Facebook Innlent Stóri-Boli boðar breytingar og klassískt vetrarveður Innlent Trump segir Nielsen í vondum málum Erlent Trump sýndi verkamanni puttann Erlent Verðandi sendiherra grínaðist með að Ísland yrði 52. ríkið Erlent Baráttan um Samfylkinguna í borginni nálgast suðumark Innlent Hneykslan meðal kennara vegna rangfærslna Ingu í Kastljósi Innlent Spyr hvort það hafi borgað sig að koma Flokki fólksins til valda Innlent Fleiri fréttir Verðandi sendiherra grínaðist með að Ísland yrði 52. ríkið Síðustu ellefu ár þau hlýjustu í mælingasögunni 32 látnir eftir að krani féll á lest í Taílandi Rannsaka ásakanir á hendur Iglesias Sautján prósent Bandaríkjamanna styðja innlimun Grænlands Vaktin: Mikilvæg fundarhöld í Washington Tveir látnir eftir árekstur strætisvagna Reyna að tala Trump til og óttast afleiðingar árása Bandaríkjastjórn kemur barnaníðsefni Musk til varnar Mengunarreglur taka ekki lengur tillit til dauðsfalla og heilsu Starmer boðið sæti í „friðarstjórn“ Trump Trump segir Nielsen í vondum málum Trump heitir íhlutun ef stjórnvöld hefja aftökur Trump sýndi verkamanni puttann Keyptu tæki sem gæti útskýrt Havana-heilkennið Fundurinn í Washington gæti reynst örlagaríkur „Við veljum Danmörku“ Að minnsta kosti þrjú þúsund látnir í Íran Búa sig undir áhlaup um borð í skuggaskip Fá Andrés Önd til að bjarga læsi barna Borgin ber enga ábyrgð í Gufunesbruna og stjórnarmaður í Truenorth segir tjónið óbætanlegt Vance ætlar að sitja fundinn með Løkke og Rubio Farið yfir skandalinn í Minnesota: Vopnvæðir fjársvik til að refsa „bláum ríkjum“ Hótar Musk frekari sektum bregðist hann ekki við barnaníði Lögðu hald á tíu tonn af kókaíni nærri Kanaríeyjum Kynnir sér möguleika varðandi Íran og leggur toll á vinaríki klerkastjórnarinnar Machado heimsækir Hvíta húsið á fimmtudag Vara Evrópuríkin við því að taka á móti embættismönnum frá Taívan Þvert nei Grænlendinga við yfirtöku Bandaríkjanna Trump ósáttur við orð olíuforstjórans og vill útiloka hann Sjá meira