Erlent

Leit hætt að svarta kassa Air France

Óli Tynes skrifar
Stél vélarinnar var meðal þess sem fannst í sjónum.
Stél vélarinnar var meðal þess sem fannst í sjónum. Mynd/AP

Svarti kassinn í flugvélum er með sérstakan sendi sem gefur frá sér hljóðmerki til þess að auðveldara sé að finna hann.

Aldrei heyrðist hinsvegar neitt merki frá sendi Air France vélarinnar sem fórst fyrsta júní síðastliðinn.

Rafhlöðurnar í sendunum endast í þrjátíu daga. Í gær voru fjörutíu dagar frá slysinu og var þá leitinni hætt.

Það gerir rannsókn slyssins mun erfiðari að hafa ekki þær upplýsingar sem skráðar eru í svarta kassann.

Hinsvegar fannst fimmtíu og eitt lík og yfir sexhundruð brakhlutir úr vélinni. Sérfræðingar hafa ráðið af þeim gögnum sem þeir hafa undir höndum að vélin hafi ekki sundrast á flugi eins og fyrst var talið.

Hún hafi fallið nánast lóðrétt á gríðarlegum hraða og skollið á magann í sjóinn þar sem hún splundraðist.

Vélin var að fljúga í gegnum mikið óveður og ókyrrð þegar slysið varð. Þrjár aðrar vélar sem voru á eftir henni breyttu stefnu sinni og tóku allt að eitthundrað kílómetra sveig til þess að komast framhjá óveðrinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×