Erlent

Féll niður virki á tónlistarhátíð

Frá tónlistarhátíðinni Exit Festival í borginni Novi Sad norðan af Belgrad, höfuðborg Serbíu.
Frá tónlistarhátíðinni Exit Festival í borginni Novi Sad norðan af Belgrad, höfuðborg Serbíu.
Breskur karlmaður á þrítugsaldri lést í dag eftir að hafa fallið af brún gamals virkis í borginni Novi Sad norðan af Belgrad, höfuðborg Serbíu. Í virkinu, sem stendur í hlíð við miðborgina, fer fram árleg tónlistarhátíð. Slysið varð í gærkvöldi en maðurinn lést af sárum sínum á sjúkrahúsi í dag. Ekki er vitað um tildrög slyssins.

Exit tónlistarhátíðin var fyrst haldin fyrir tíu árum í mótmælaskyni við Slobodan Milosevic, fyrrum forseta Serbíu. Björk Guðmundsdóttir hefur tvisvar troðið upp á tónlistarhátíðinni

Rúmlega 190 þúsund gestir eru á hátíðinni en henni lýkur á morgun.

Lily Allen, Arctic Monkeys, Manic Street Preachers, Moby og Korn eru meðal þeirra listamanna og hljómsveita sem komu fram á hátíðinni þetta árið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×