Erlent

Obama undirritar ný tóbakslög en reykir sjálfur

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Breska blaðið Telegraph birtir þessa mynd á vef sínum en lætur þess getið í myndatexta að líklegast hafi hún verið lagfærð eitthvað í þar til gerðum tölvuforritum.
Breska blaðið Telegraph birtir þessa mynd á vef sínum en lætur þess getið í myndatexta að líklegast hafi hún verið lagfærð eitthvað í þar til gerðum tölvuforritum. MYND/Telegraph

Barack Obama Bandaríkjaforseti undirritaði í vikunni lög sem heimila yfirvöldum að setja verulegar skorður við tóbaksframleiðslu. Hann er hins vegar ekki syndlaus.

Nei, það er hann ekki. Obama fær sér nefnilega einn og einn líkkistunagla. Opinberlega hefur hann lýst því yfir að hann sé að berjast við að drepa í en eins og velflestir reykingamenn þekkja er það oft löng og ströng barátta og fátt auðveldara en að misstíga sig aðeins. Obama játar þetta fúslega.

Hann segist ekki reykja dags daglega en hins vegar komi það mjög gjarnan fyrir að hann kveiki sér í einni, svona ef dagurinn er sérstaklega erilsamur. Hann hefur þá reglu að reykja ekki fyrir framan fjölskyldu sína en hann byrjaði upphaflega að reykja fyrir 18 ára aldur eins og 90 prósent reykingamanna gera.

Nýju lögunum er einmitt ætlað að stemma stigu við þessu en þau gefa matvæla- og lyfjaeftirliti Bandaríkjanna heimild til að setja tóbaksframleiðendum stólinn fyrir dyrnar, bæði hvað varðar framleiðslu og markaðssetningu tóbaks. Þetta táknar að eftirlitið megi skipa framleiðendum að draga úr hvoru tveggja, framleiðslu tóbaks og tóbaksauglýsingum.

Árlega deyja 440.000 Bandaríkjamenn af völdum reykinga en spurningin er hvort Obama hafi kveikt sér í einni eftir að hann skrifaði undir nýju lögin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×