Erlent

Kraftaverk að maður lifði af skotárás

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Lögreglan í Kaupmannahöfn segir það hreint kraftaverk að 26 ára gamall maður, sem var skotinn í höfuðið, magann, hand- og fótlegg við Rødovrevej laust fyrir miðnætti í gærkvöldi, sé á lífi og auk þess úr lífshættu. Árásarmannsins er nú leitað en sá sem skotinn var tengist stuðningshópi vélhjólasamtakanna Vítisengla, svokölluðum AK81-hópi, en þar er um að ræða áhangendur sem bíða þess að verða teknir með formlegum hætti inn í Vítisenglana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×