Hubble eins og nýr eftir viðgerðina Atli Steinn Guðmundsson skrifar 20. maí 2009 08:27 Geimfarinn John Grunsfeld í fimmtu og síðustu ferðinni út úr Atlantis og að Hubble. Sú ferð tók rúmar sjö klukkustundir og reyndi á þolrifin. MYND/Reuters/NASA
Hubble-sjónaukinn er kominn á sinn venjubundna sporbaug um jörðu eftir að hafa gengið í endurnýjun lífdaganna. Þetta mikla auga geimferðastofnunarinnar NASA, sem heitir í höfuðið á stjörnufræðingnum Edwin Powell Hubble, er nú í toppstandi eftir alls 36 klukkustunda viðhaldsvinnu sem fór fram í fimm geimgöngum áhafnar geimskutlunnar Atlantis. Fáir geimleiðangrar hafa átt sér annan eins aðdraganda en áhöfnin æfði þrotlaust mánuðum saman fyrir ferðina enda gera menn ekki við stjörnusjónauka í 575 kílómetra hæð eins og að skipta um dekk. Aðallinsa Hubble er 2,4 metrar í þvermál og gripurinn allur vegur 13 tonn. Hann ferðast að jafnaði með rúmlega 26.000 kílómetra hraða á klukkustund og fer hringinn um jörðina á 96 klukkustundum. David Leckron, aðalstjórnandi Hubble-áætlunarinnar hjá NASA, segir að varla sé til sú grein innan stjörnufræðinnar sem sjónaukinn hefur ekki með einhverju móti varpað ljósi á þau 19 ár sem hann hefur sveimað yfir höfðum okkar. Til að mynda staðfesti Hubble tilvist svonefndrar hulduorku sem er þáttur í sífelldri útþenslu alheimsins. Ekki má gleyma þeim áhrifum sem Hubble hefur haft á kenningar stjörnufræðinga um hvernig alheimurinn varð til en gegnum sjónaukann má greina fyrirbæri sem áttu sér stað aðeins 500 milljónum ára eftir að það gerðist eða fyrir rúmum 13 milljörðum ára.
Mest lesið Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent Leavitt hættir hjá Trump Erlent ICE-liðar fá rafmagnshanska Erlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Innlent Bíll við bíl á Snæfellsvegi Innlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Innlent Fleiri fréttir Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Ófrjósemi: Gervigreindin notuð til að finna sáðfrumur í geldsæði Farage etur kappi við grínara og aðra furðufugla Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Þúsunda saknað og tíminn að renna út Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Norskir nei-sinnar bæta við sig Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka Vill aðskilja bólusetningar gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum Efnt til æfinga í Taívan fyrir umfangsmikið rof á fjarskiptum Assad dæmdur til dauða í heimalandinu Réttað yfir fyrrverandi glæpaforingja vegna morðsins á Tupac Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Sjá meira