Erlent

Sjóræningjar láta grípa sig til að fá hæli

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Sómalskir sjóræningjar láta í sumum tilfellum handtaka sig af ásettu ráði til að notfæra sér evrópskar reglur um hælisleitendur. Þetta segir Geert-Jan Knoops, sérfræðingur í alþjóðlegum refsirétti og prófessor við Háskólann í Utrecht í Hollandi. Fimm sjóræningjar, sem teknir voru höndum eftir að hafa ráðist á hollenskt skip, voru færðir fyrir dóm í Hollandi og dæmdir þar. Tveir þeirra hafa nú þegar óskað eftir að fá að taka upp búsetu í Hollandi og þar sem Sómalía er á skrá fyrir brot á alþjóðlegum mannréttindum er hollenskum yfirvöldum nánast ómögulegt að vísa þeim til baka til Sómalíu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×